5.4.2009 | 23:06
Númer 2
Þeir sem þykjast þekkja mig eitthvað vita að tónlistar gúrúinn Peter Gabriel er í MIKLU uppáhaldi hjá mér. Við barnsfaðir minn, systir og mágur vorum að ræða um tónlist í einu matarboðinu og karlinn minn vildi vera fyndinn og frussaði útúr sér að hann pétur minn gabríel sé væminn með lélega tónlist, en á móti þá er Robbie Williams hörku gaur með æðislega tónlist (og sexy). Karlinn varð að hoppa út á svalirnar hratt með sígarettuna, bjórinn og var skellihlæjandi. Annars hefði það endað með því að karlgreyið þyrfti að sitja á púða það sem eftir var kvöldsins. Erfitt að segja að við vorum ánægð með þetta comment.
Veit um eina skvísu sem ELSKAR KK. Hún sagði einu sinni að ef hún væri ekki gift, þá væri hún einhversstaðar hlaupandi á eftir karlinum KK. Get ekki sagt það sama um PG. Fullgróft að eltast við mann sem er fæddur á sama ári og mamma.
Svo gleymdi ég að segja, (frá bloggfærslu 1) þetta á ekki bara við um stafsetningavillurnar, heldur einnig hvað ég er dugleg að beygja orðin.
Nýjustu færslur
- 12.9.2009 Alveg ótrúlegt!
- 1.7.2009 Michael Jackson - THE SWAN
- 18.6.2009 Funky
- 16.6.2009 Bómullarský
- 3.6.2009 Espressoholic?
Eldri færslur
Hér kemur stóra spurningin
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.3.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 239
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
peter gabriel? omg! ég held ég sé sammála sveibbó með hann. en reyndar finnst mér robbie aaals ekki spes, þó hann eigi nokkur stuðlög :)
tóta prump (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 23:23
Hehe.... á þetta ekki líka við um Gary Oldman, Mike Mills og Liam Neeson? : ) Ég heimta að fá að sjá ykkur Sveinka rífast um Peter Gabriel!
Soffía (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.