Leita í fréttum mbl.is
Embla

Alveg ótrúlegt!

Opnaði þessa fínu blogg síðu hjá mér vegna þess að ég ætlaði að vera svo ofboðslega dugleg að skrifa um lífið og tilveruna í sveitinni, þar sem að ég og litla fjölskyldan mín fluttum úr bænum í sveitina, fjarri öllum vinum og skyldfólki. En þetta er augljóslega ekki alveg að ganga hjá mér. Það eina sem þarf að gera er að fá INTERNET!!! Ætti ekki að vera flókið, en af einhverri sök þá erum við ekki búin af því og svei mér þá.... við söknum þess ekkert ofboðslega mikið!

 En fínt að hafa einhverja stefnu í sveitinni og það er að fá internet heim!


Michael Jackson - THE SWAN

Mikill missir!

Segi að þetta er mikill tónlistarmissir. Frábær söngvari, dansari og performer. Perfect!! Love him!

Mundi svo eftir að þegar ég var lítil þá teiknaði ég handa móðursystur mína mynd af henni og Michael Jackson þar sem að þau haldast í hendur og svo var stórt hjarta á milli þeirra. Fannst þau vera eitthvað svo lík í gamla daga og þá sérstaklega svarta hárið. Get svo sagt að það var smá draumur um að þau myndu enda saman sem kærustupar :)

Talaði einmitt við móðursystur mína og hún minnti mig á að þegar við vorum í Tivoli í DK þá var tæki sem kallaðist "Svanirnir" og við neituðum að fara í tækið nema að við fengum að sita í svaninn sem Michael Jackson hafði setið í. Hann var hvítur með rauðum hjörtum man ég eftir og við þurftum að bíða  frekar lengi þangað til að hann var laus. Þegar við náðum loksins THE SWAN þá nudduðum við rassana okkar (of course í buxum) eins fast og við gátum í sætið :) Skemmtilegar minningar!

Hlógum af þessu :)


Funky

Ég er farin að halda að það er eitthvað "extra" í lyfjunum sem ég á að taka á kvöldin. Er byrjuð að dreyma svo svakalega að ég næ ekki að hvíla mig alminnilega, vegna þess að ég er oft að vakna. En núna í nótt fór þetta gersamlega út fyrir línuna.

Dreymdi að ég fór í vinnuna til karlsins og sá að það voru ekkert nema tipptopp fyrirsætur að vinna þarna með honum sem voru að daðra og káfa á honum. Hann rétt heilsaði mér og þóttist svo síðan ekki sjá mig. Eftir að hafa setið í nokkrar min. og fylgst með þessu þá fer ég grátandi heim. Þegar heim var komið mundi ég allt í einu að ég var að passa 3 börn systur mína. Hélt að þau voru týnd en fann þau svo loks í ruslafötu-rennunn! Þar voru þau búin að troða sér inn. Svo verð ég svöng og það var ekkert til heima svo að ég byrja að BORÐA BARNIÐ MITT!!!! Nánar tilkekið LÆRIÐ á greyið stráknum!!! Verð þyrst og fer inní eldhús og þar sýður allt saman. Vatn, gos og bara you name it það sauð!

Veit að ég er ekki normal svona yfir höfuð en þetta er bara fáránlegt! Myndi frekar svelta mig í hel heldur en að borða barnið!


Bómullarský

Við fjölskyldan vorum að rúnta um bæinn í kvöld og ég leit upp til að horfa á skýin og þá komu upp gamlar pælingar frá því að ég var um 5-6 ára gömul. Ég elskaði að fljúga og vissi ekkert æðislegra en þegar flugvélin var að fljúga í gegnum skýin, og þegar við vorum komin yfir þau og sólin skein þá fannst mér eins og ég væri að horfa yfir stórt bómullarhaf.

Dreymdi alltaf um að ég gæti teygt mig útúr vélinni og safnað skýin í svartan plastpoka til að geta legið á mínu eigin bómullarskýi heima hjá mér.

Frekar steikt


Espressoholic?

Espresso...

á morgnanna,

í hádeginu,

síðdegiskaff

og 

kvöldkaffi (mmm)

 

Too much?


Skrååk

Þeir sem segja að það sé yndislegt að vakna við fuglasöng eiga það skilið að láta bíta af sér eyrun. Nú er komið nóg!

Það vill svo til að glugginn í svefnherberginu mínu snýr að stórum læk þar sem að fuglalífið er á hæsta stigi. Og þráðurinn á mér er orðinn ansi stuttur eftir að hafa verið hérna í einhvern tíma. Var nærrum búin að hlaupa út í náttsloppnum um miðja nótt með eitthvað í hendinni til að drita niður þessa &$#% fugla...... og þá sérstaklega einn ákveðinn svan! Við erum að tala um að greyið er svakalega tóndaufur!!! Ekki nóg með að þurfa að hlusta á þetta "brabra" um miðja nætur, en að fá svo þetta hræðilega "SKRRÅÅÅK" öskur þarna á milli er meir en eyrun á mér þola!

Veit ekki hvað ég þoli mikið meir án þess að tapa mér


Merkisdagur!

Nú er loksins netið komið aftur í lag eftir að hafa farið í verkfall í 2 vikur.

Eins og fyrirsögnin segir þá er 9 maí merkisdagur fyrir mig og fjölskylduna mína. Móðir mín hefði orðið 61 árs í dag. Við bróðir minn höldum alltaf upp á daginn með að fara í kirkjugarðinn og svo á uppáhalds kaffihúsið hennar Mokka á Skólavörðustígnum og þar fáum við okkur alltaf kaffi og vöfflur sem hún hélt mikið upp á. Og við erum að tala um að vöfflurnar hjá þeim eru æðislegar! Það er einnig hefð að þegar við förum í garðinn þá kaupum við alltaf gular rósir handa mömmu (hún elskaði þær), og við gefum henni alltaf eina sígarettu. Við kveikjum í sígarettunni og festum hana í grasinu þar sem mamma er grafin og auðvitað reykjum við eina með henni. Mamma gerði þetta sjálf þegar hún fór upp að leiði til pabba síns. Mörgum finnst þetta skrítið og jafnvel asnalegt en þetta er eitthvað sem hefur verið í fjölskyldunni í mörg ár og mér þykir voða vænt um þetta. Við eigum þetta saman jafnvel þótt að hún sé ekki lengur hér hjá okkur. 

Við bróðir minn toppuðum svo daginn með að syngja afmælis sönginn bæði á íslensku og dönsku í kirkjugarðinum og höfðum voða gaman af því :)

Til hamingju með afmælið skvís! :)

 


C.S.I.

Pirruð!

Var búin að skrifa og ætlaði að birta textan en nei. talvan vildi ekki leyfa mér það og allt hvarf. Taka tvö...

 Var að klára að horfa á þátt á skjár1 og miða við fyrirsögnina þá ættuð þið nú að átta ykkur á hvaða þáttur það var. Þetta er alveg ágætis afþreying þegar ég er heima og hef bókstaflega ekkert annað að gera. Ekki svo að ég horfi á klukkuna og bíð spennt allt kvöldið. Ég er nú engin expert en það eru nokkur atriði í þessum þáttum sem að ég hef alltaf leyft að trufla mig pínu. Er ekki hægt að kveikja ljósin? Hefði nú haldið að það væri auðveldara að vinna við pínu birtu, ef ekki á rannsóknastofunum þá allaveganna á skrifstofurnar.

Svo fór ég að hugsa um að nánast í öllum þeim þáttum sem ég hef séð þá hefur þeim tekist að leysa málin innan við 24 klst. en ef þau eru rosalega óheppin 48 klst. Ef að það væri þannig í alvöru.

Ég er skrítin


Brabra

                                                        brabra

Fór með litla pjakkinn í göngutúr og ég ætlaði að leyfa honum að skoða endurnar og gefa þeim gott að borða. Fór reyndar þannig að hann sofnaði og ég sat þarna ein að gefa öndunum brauð. Var rosalega ánægð með mig fyrir það að vera svona góð og gefandi manneskja, þangað til að ég áttaði mig á því að ég varð orðin rosalega svöng. Hef langað að borða vel eldaða önd í langan tíma. Gæti verið einhver tenging þar á milli? Fékk heiftarlegt samviskubit þegar ég sá hvað endurnar horfðu á mig voða þakklátar eitthvað. Ég pakkaði saman, strunsaði heim, fékk mér ristað brauð og á meðan þá fantaseraði ég allan tíman um einhverja rosalega góða andarsteik með appelsínusósu.Namm!

 


Númer 2

Þeir sem þykjast þekkja mig eitthvað vita að tónlistar gúrúinn Peter Gabriel er í MIKLU uppáhaldi hjá mér. Við barnsfaðir minn, systir og mágur vorum að ræða um tónlist í einu matarboðinu og karlinn minn vildi vera fyndinn og frussaði útúr sér að hann pétur minn gabríel sé væminn með lélega tónlist, en á móti þá er Robbie Williams hörku gaur með æðislega tónlist (og sexy). Karlinn varð að hoppa út á svalirnar hratt með sígarettuna, bjórinn og var skellihlæjandi. Annars hefði það endað með því að karlgreyið þyrfti að sitja á púða það sem eftir var kvöldsins. Erfitt að segja að við vorum ánægð með þetta comment.

Veit um eina skvísu sem ELSKAR KK. Hún sagði einu sinni að ef hún væri ekki gift, þá væri hún einhversstaðar hlaupandi á eftir karlinum KK. Get ekki sagt það sama um PG. Fullgróft að eltast við mann sem er fæddur á sama ári og mamma. 

Svo gleymdi ég að segja, (frá bloggfærslu 1) þetta á ekki bara við um stafsetningavillurnar, heldur einnig hvað ég er dugleg að beygja orðin.

 


Næsta síða »

Höfundur

Sif Björnsdóttir
Sif Björnsdóttir
er fyrst og fremst móðir, wannabe tónlistar fíkill, athafnaletingi og sér ekki tilganginn með því að taka sjálfa sig né aðra sérlega alvarlega! .... og ekki má gleyma frábær!

Nýjustu myndir

  • espresso
  • brabra

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband